Wenger: Aðalmálið var að vinna

Mikel Arteta skorar eitt marka Arsenal með hörkuskoti. stækka

Mikel Arteta skorar eitt marka Arsenal með hörkuskoti. Reuters

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sagði eftir stórsigur sinna manna á Blackburn, 7:1, í ensku úrvalsdeildinni í dag að sigurinn og spilamennskan hefði verið aðalatriðið, ekki hve stór hann var.

„Ég legg ekki mikið uppúr því að við skoruðum sjö mörk, heldur að við unnum og spiluðum vel. Mér finnst við oft hafa spilað vel að undanförnu án þess að það skilaði sér í réttum úrslitum. Í dag lékum við vel og fengum réttu úrslitin, og það er fyrst og fremst það sem maður vill,“ sagði Wenger við Sky Sports.

Þetta var stærsti sigur Arsenal í fimm ár og fyrsti sigur liðsins í deildinni á þessu ári.

„Við héldum einbeitingu, spiluðum fótbolta eins og við viljum gera, sem lið en ekki sem einstaklingar. Við lékum á þroskaðan og yfirvegaðan hátt, frá fyrstu til síðustu mínútu,“ sagði Wenger, en lið hans boðaði með þessu á ný komu sína í baráttuna um fjórða sætið í deildinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is