Beckham fékk rauða spjaldið í pollaleik

David Beckham. stækka

David Beckham. Reuters

David Beckham, fyrrverandi landsliðsfyrirliði Englands í knattspyrnu, upplýsti í breskum spjallþætti um helgina að hann hefði fyrir skömmu fengið rauða spjaldið fyrir að deila við dómara þegar hann fylgdist með sjö ára strákum í Los Angeles spila fótbolta.

Beckham var í viðtali hjá Jonathan Ross hjá ITV og sagði þar frá atvikinu, en þá var hann mættur til að fylgjast með syni sínum, Romeo, taka þátt í móti. Atvik í næsta leik áður en röðin kom að Romeo að spila varð til þess að Beckham lenti í útistöðum við dómarann.

„Þarna  var dæmd vítaspyrna, í leik hjá sjö ára krökkum, og dómarinn rak brotlega strákinn út af. Ég sagði þá: „Heyrðu, hann er sjö ára gamall. Dómari, þú getur ekki rekið hann út af.“ Og hann horfði á mig og svaraði: „Jú, ég get það.“ Og ég svaraði: „Nei, þú getur það ekki. Hann er sjö ára.“ Þá kom hann til mín og sýndi mér rauða spjaldið, og sagði mér að yfirgefa vallarsvæðið. Hliðið var bara í 20 metra fjarlægð svo ég beið þar og kom aftur inn þegar röðin kom að syni mínum að spila,“ sagði Beckham í þættinum.

Beckham, sem er 36 ára gamall, er nýbúinn að gera nýjan tveggja ára samning við Los Angeles Galaxy.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is