Capello telur Terry enn vera fyrirliða

Fabio Capello er óhress með gang mála varðandi John Terry. stækka

Fabio Capello er óhress með gang mála varðandi John Terry. Reuters

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, er kominn uppá kant við enska knattspyrnusambandið en í kvöld sagði hann í samtali við ítölsku sjónvarpsstöðina Rai 1 að hann liti svo á að John Terry væri enn fyrirliði landsliðsins.

Enska knattspyrnusambandið ákvað fyrir helgina að svipta Terry fyrirliðabandinu vegna dómsmáls hans og Antons Ferdinands, sem verður ekki tekið fyrr fyrr en 9. júlí, að lokinni úrslitakeppni Evrópumótsins í sumar.

„Ég er algjörlega ósammála knattspyrnusambandinu varðandi ákvörðun þess um John Terry og ég hef sagt formanninum það. Ég sagði honum að ég teldi ekki hægt að refsa einhverjum fyrr en hann hefði verið fundinn sekur. Ég taldi og tel enn að Terry sé fyrirliði landsliðsins. Ég tel að við eigum að bíða eftir endanlegum dómi. Dómstóllinn tekur ákvörðun. Það verður tekin borgaraleg ákvörðun, ekki íþróttaleg, um hvort John Terry sé sekur. Og ég tel því sanngjarnt að John Terry sé áfram fyrirliði," sagði Capello.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is