Draumasigurmark nýliðans

Papiss Demba Cissé og Demba Ba skoruðu báðir í dag. stækka

Papiss Demba Cissé og Demba Ba skoruðu báðir í dag. Reuters

Papiss Demba Cissé, Senegalinn sem kom til Newcastle frá Freiburg í janúar, skoraði glæsilegt sigurmark í fyrsta leik sínum á Englandi þegar Newcastle vann Aston Villa 2:1 í dag.

Demba Ba hafði komið Newcastle í 1:0 fyrr í leiknum en Robbie Keane jafnaði fyrir Villa-menn sem voru nálægt því að jafna metin á ný í lokin.

Með sigrinum komst Newcastle upp að hlið Chelsea í 4.-5. sæti, um tíma alla vega, en Aston Villa er áfram í 13. sæti.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is:

88. Villa var hársbreidd frá því að jafna metin. Gary Gardner var nýkominn inná sem varamaður og átti skalla af stuttu færi sem Tim Krul varði. Krul náði svo naumlega taki á boltanum áður en Emile Heskey náði til hans.

71. MARK! Vá! Papiss Cissé stimplaði sig inn í deildina með stórkostlegu marki. Jonas Gutierrez gaf boltann fyrir frá vinstri og Cissé tók hann niður, og smellti honum efst í markvinkilinn vinstra megin.

45. MARK! Aston Villa jafnaði metin í 1:1 í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Charles N'Zogbia geystist með boltann inn í vítateiginn vinstra megin og gaf fyrir markið á Robbie Keane sem kom knettinum í netið.

34. Ryan Taylor varð að fara meiddur af velli eftir tæklinguna frá Dunne þegar markið kom, og Gabriel Obertan kom inn í hans stað.

30. MARK! Danny Guthrie sendi fyrir frá vinstri á Demba Ba sem skallaði boltann áfram á Ryan Taylor. Taylor spyrnti boltanum en lenti í tæklingu frá Richard Dunne og lá óvígur eftir. Boltinn barst til Ba sem skoraði enn eitt markið í vetur. Darren Bent var nýbúinn að klúðra öðru dauðafæri fyrir gestina.

14. Papiss Cissé er kominn inná í stað Leon Best sem meiddist.

13. Villa-menn voru nálægt því að komast yfir þegar Darren Bent komst í dauðafæri vinstra megin við markteiginn en Tim Krul varði mjög vel frá honum.

0. Demba Ba er kominn aftur inn í lið Newcastle eftir Afríkukeppnina og nýi framherjinn, Papiss Demba Cisse, er á bekknum. Lið Aston Villa er óbreytt frá síðasta leik. Gabriel Agbonlahor á enn við meiðsli að stríða.

Newcastle: Krul, Simpson, Williamson, Coloccini, Santon, Ryan Taylor, Guthrie, Perch, Gutierrez, Ba, Best.
Varamenn: Elliot, Cisse, Ben Arfa, Gosling, Shola Ameobi, Obertan, Ferguson.

Aston Villa: Given, Hutton, Cuellar, Dunne, Warnock, Ireland, Petrov, Clark, N'Zogbia, Keane, Bent.
Varamenn: Guzan, Heskey, Bannan, Weimann, Lichaj, Baker, Gardner.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is