Gott að setja pressu á United
Phillipe Senderos hjá Fulham og Gareth Barry hjá City berjast um boltann í snjókomunni í Manchester. Reuters
Adam Johnson, kantmaður Manchester City og enska landsliðsins í knattspyrnu sagði eftir 3:0 sigur City á Fulham í gær að það hefði verið gott að ná að setja aukna pressu á grannana í Manchester United.
City er með 57 stig á toppnum en United sækir Chelsea heim í dag og er með 54 stig.
„Það var afskaplega mikilvægt að rífa okkur upp og ná í góð úrslit eftir leikinn við Everton þar sem við spiluðum ekki nægilega vel. Það er þægilegt að hafa náð þremur stigum og sett pressu á hin liðin. Það verður fróðlegt að sjá úrslitin í leikjunum á morgun," sagði Johnson við ESPN eftir leikinn en hann krækti í vítaspyrnu gegn Fulham og átti stóran þátt í sjálfsmarki gestanna.
Roberto Mancini knattspyrnustjóri City var ánægður með sína menn. „Þeir voru frábærir og léku virkilega vel. Það var ekki auðvelt því Fulham er gott lið. Eftir tapið um daginn voru þetta geysilega mikilvæg úrslit. Við áttum í ýmsum erfiðleikum í janúar og sá mánuður var köflóttur. Vonandi tekst okkur að halda okkar striki og vinna líka næsta leik," sagði Mancini.






