Leikfært á Stamford Bridge í dag

Chelsea og Manchester United mætast í dag. stækka

Chelsea og Manchester United mætast í dag. Reuters

Enska knattspyrnufélagið Chelsea tilkynnti fyrir stundu að leikurinn gegn Manchester United í úrvalsdeildinni færi fram á tilsettum tíma, á Stamford Bridge klukkan 16 í dag, en óttast var um tíma að þyrfti að aflýsa honum vegna snjókomu.

Stamford Bridge  var snævi þakinn í gærkvöld en hitastig í London er nú rétt yfir frostmarkinu og samgönguleiðir allar í lagi í kringum völlinn.

Hinsvegar hefur grannaslag Derby og Nottingham Forest í B-deildinni verið frestað vegna snjókomu en það er vegna samgönguerfiðleika í Mið-Englandi.

Einn annar leikur er í ensku úrvalsdeildinni í dag en Newcastle tekur á móti Aston Villa klukkan 13.30.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is