Mögnuð endurkoma Man. Utd

Fernando Torres er hér í baráttu við Michael Carrick. Hann lagði upp annað mark Chelsea. stækka

Fernando Torres er hér í baráttu við Michael Carrick. Hann lagði upp annað mark Chelsea. Reuters

Chelsea og Manchester United gerðu 3:3 jafntefli í stórleik á Stamford Bridge í dag. Chelsea komst í 3:0 á 50. mínútu en Wayne Rooney skoraði úr tveimur vítaspyrnum áður en Chicharito jafnaði metin.

Tvö marka Chelsea verða sennilega skráð sem sjálfsmörk en Juan Mata skoraði það þriðja.

United er nú með 55 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Manchester City, en Chelsea er með 43 stig í 4. sæti.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

90.+1 Ótrúleg markvarsla! Juan Mata tók aukaspyrnu og spyrnti boltanum í átt að hægra markhorninu en David de Gea náði með naumindum að teygja sig og verja stórkostlega.

84. MARK! United-menn hafa jafnað metin eftir að hafa lent 3:0 undir. Cech varði skot frá Rooney en boltinn barst til Ryan Giggs sem var við vítateigslínuna vinstra megin og sendi frábæra sendingu inn á markteig þar sem varamaðurinn Chicharito skoraði með skalla.

69. MARK! Aftur skoraði Wayne Rooney af öryggi úr víti og minnkaði muninn í 3:2. Nægur tími til stefnu fyrir gestina.

68. VÍTI! Danny Welbeck fiskaði vítaspyrnu með því að fara utan í Branislav Ivanovic sem renndi sér í teignum. Strangur dómur.

63. Paul Scholes var að koma inná í stað Rafael. Antonio Valencia fer því í stöðu bakvarðar.

58. MARK! Gestirnir minnkuðu muninn í 3:1 þegar Wayne Rooney þrumaði efst í vinstra markhornið úr vítinu sem Evra fiskaði.

57. VÍTI! Patrice Evra nældi í vítaspyrnu þegar Daniel Sturridge braut á honum. Réttur dómur.

53. Javier Hernandez var að koma inná í stað Ashley Young.

50. MARK! Mata tók aukaspyrnu hægra megin við vítateiginn og sendi boltann á David Luiz sem var afar illa dekkaður og átti skalla sem fór af Rio Ferdinand og í markið. Staðan 3:0 og Chelsea er langt komið með að tryggja sér sigur hreinlega.

46. MARK! Seinni hálfleikur var rétt hafinn þegar Fernando Torres fékk boltann úti á hægri kanti og gaf fullkomna fyrirgjöf á fjærstöng á Juan Mata sem var aleinn, smellhitti boltann á lofti og skoraði. Staðan því 2:0.

45. Hálfleikur. Chelsea er 1:0 yfir í hálfleik. Hvort lið um sig hefur átt sex skot og United náði aðeins að ógna marki Chelsea undir lok hálfleiksins eftir sjálfsmark Jonny Evans.

36. MARK! Daniel Sturridge lék frábærlega á Evra hægra megin við markteiginn og spyrnti boltanum svo út í markteiginn þar sem hann fór af Jonny Evans og í markið.

29. Wayne Rooney fékk góða stungusendingu frá Antonio Valencia hægra megin og reyndi svo sendingu til hliðar á Danny Welbeck en Branislav Ivanovic kom til bjargar á ögurstundu og kom boltanum í horn.

11. Ashley Young reyndi að fiska víti í baráttu við Jose Bosingwa en ekki virtist um brot að ræða. Skömmu síðar var Danny Welbeck svo að sleppa inn í vítateig Chelsea þegar Gary Cahill virtist brjóta á honum en í endursýningu sást að Cahill tók boltann. United-menn voru þó afar ósáttir.

1. Leikurinn er hafinn. 

0. Wayne Rooney og Ashley Young snúa aftur inn í lið United eftir meiðsli. Nani er hins vegar ekki í leikmannahópnum.

0. Gary Cahill leikur fyrsta deildarleik sinn fyrir Chelsea í dag í fjarveru John Terry. Jose Bosingwa er í stöðu vinstri bakvarðar í stað Ashley Cole.

Chelsea: Cech - Ivanovic, Cahill, D Luiz, Bosingwa - Essien, Meireles, Malouda - Sturridge, Torres, Mata.
Varamenn: Turnbull, Ferreira, Bertrand, Hutchinson, Romeu, Piazon, Lukaku.

Man. Utd: De Gea - Rafael, Evans, Ferdinand, Evra - Valencia, Carrick, Giggs, Young - Welbeck, Rooney.
Varamenn: Amos, Berbatov, Park, Chicharito, Fabio, Scholes, Pogba.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is