Rooney: Stig sem gæti tryggt okkur titilinn

David de Gea ver glæsilega frá Juan Mata í uppbótartíma á Stamford Bridge í dag. stækka

David de Gea ver glæsilega frá Juan Mata í uppbótartíma á Stamford Bridge í dag. Reuters

„Þegar upp verður staðið getur þetta stig gegn Chelsea tryggt okkur meistaratitilinn," sagði Wayne Rooney við Sky Sports eftir jafnteflið, 3:3, á Stamford Bridge í dag, þar sem Chelsea náði þriggja marka forystu.

Rooney skoraði úr tveimur vítaspyrnum áður en Javier Hernández jafnaði metin skömmu fyrir leikslok.

„Ég tel að við höfum stjórnað leiknum frá fyrstu mínútu og mér fannst við vera óheppnir að lenda 1:0 undir. Í seinni hálfleik fengum við á okkur tvö mörk á fyrstu fimm mínútunum og vissum að við yrðum að leggja allt í sölurnar, og ef okkur tækist að skora eitt mark ættum við möguleika á að fá eitthvað útúr leiknum.

Við börðumst af miklum krafti, og þegar upp verður staðið getur þetta stig unnið deildina fyrir okkur. Sum lið eru tilbúin til að gefa eftir í svona stöðu og játa sig sigruð, en við héldum áfram og fengum sem betur fer eitthvað útúr leiknum," sagði Rooney.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is