Villas-Boas: Mikil vonbrigði

Rio Ferdinand og Fernando Torres eigast við í leiknum í dag. stækka

Rio Ferdinand og Fernando Torres eigast við í leiknum í dag. Reuters

André Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði að það væru mikil vonbrigði að hafa misst niður þriggja marka forskot gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Chelsea komst í 3:0 en United jafnaði í 3:3 og það urðu lokatölurnar, þannig að Lundúnaliðið náði ekki að saxa á forskot efstu liðanna og virðist ekki líklegt til að komast ofar en í fjórða sætið í bili.

Villas-Boas var ósáttur við aðra vítaspyrnuna sem United fékk. „Þetta var snúið. Fyrri vítaspyrnan var augljós en sú seinni afar vafasöm," sagði Portúgalinn á vef Chelsea en þá féll Danny Welbeck rétt innan vítateigs eftir árekstur við Branislav Ivanovic.

„Ég veit ekki hvort Howard Webb var með rétta sjónarhornið til að taka ákvörðun. Kannski dæmdi aðstoðardómarinn þetta, ég er ekki viss, en það var mikil óheppni að fá svona vítaspyrnu á sig. Ég veit ekki hvort hann var að bæta upp eitthvað frá því í fyrri hálfleiknum en þetta var rangur dómur.

Þegar upp var staðið breytti það öllu fyrir United að ná að minnka muninn í 3:2, en eftir það var ekkert óvænt að þeir næðu að jafna - það var þeirra stíll að ná því með sinni gífurlegu löngun og metnaði. Manchester United gefst aldrei upp og náðu úrslitunum sem þeir vildu, jafntefli eftir að hafa lent 3:0 undir.

En þetta eru gífurleg vonbrigði. Í toppleikjum vill maður fá topp dómgæslu og hún hefur ekki fallið með okkur undanfarið. Á Old Trafford fengum við á okkur tvö rangstöðumörk og í dag breytti vafasamur dómur gangi leiksins. Maður hefði ætlast til að fá fullkomna dómgæslu í báðum leikjunum við United, en í báðum hefur hún haft bein áhrif á úrslitin.

En við megum ekki vera að afsaka okkur, það er frábært að komast í 3:0 og mikil synd að missa það niður. Við fengum frábært tækifæri til að komast í 4:3 en David de Gea varði glæsilega," sagði Villas-Boas.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is