Vissi að Gylfi myndi henta okkur
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea City, segir að Gylfi Þór Sigurðsson falli frábærlega inní lið sitt. Gylfi skoraði fyrra markið og lagði það seinna upp þegar Swansea vann WBA 2:1 á útivelli í gær í ensku úrvalsdeildinni og var víðast hvar með hæstu einkunnir leikmanna á vellinum.
„Ég tók hann inní mitt lið þegar ég var stjóri hjá Reading svo ég veit allt um hann. Mér fannst við þurfa sóknartengilið fyrir seinni hluta tímabilsins og hann fellur fullkomlega inní þá stöðu," sagði Rodgers við Walesonline.
„Það þurfti ekki að ganga á eftir honum með að koma hingað. Hann veit hvernig ég vinn og þegar ég tók við liði Reading var hann geysilegt efni. Þegar ég sé efnilega leikmenn, nota ég þá - og hann skoraði 20 mörk þann vetur. Ég hef alltaf verið í sambandi við Gylfa, ég var viss um að hann myndi henta okkur vel og það hefur hann svo sannarlega gert.
Hann átti erfitt uppdráttar hjá Hoffenheim því þar lék hann undir stjórn þriggja þjálfara. Hann er mjög klókur strákur, elskar breska fótboltann og veit hvað ég vil," sagði Rodgers og var hæstánægður með stigin þrjú sem liðið fékk á erfiðum útivelli.
„Við hefðum getað skorað fjögur eða fimm mörk. Við erum lítið félag sem berst við að ávinna sér virðingu með spilamennskunni. Það er ekki í okkar fræðum að leggjast í vörn, við trúum algjörlega á okkar leikstíl. Við vitum að við þurfum að gera betur á útivöllum og höfum nú náð góðum úrslitum þar undanfarið," sagði Rodgers ennfremur um leikinn við WBA.






