Áttunda jafntefli Liverpool á Anfield

Luis Suárez í baráttu við Benoit Assou-Ekotto á Anfield í kvöld. stækka

Luis Suárez í baráttu við Benoit Assou-Ekotto á Anfield í kvöld. Reuters

Liverpool varð að sætta sig við enn eitt jafnteflið á heimavelli þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Tottenham í kvöld. Þetta var áttunda jafntefli Liverpool á heimavelli í 12 leikjum í deildinni og er liðið áfram í 7. sæti deildarinnar með 39 stig en Tottenham hefur 50 stig í þriðja sæti.

Liverpool var sterkari aðilinn en tókst þó ekki að skapa sér mörg færi. Gareth Bale fékk hins vegar gullið tækifæri til að tryggja Tottenham sigur. Hann komst einn á móti Pepe Reina, sem varði skot Walesverjans.

Bein textalýsing:

90+4 Leiknum er lokið. Liðin skildu jöfn, 0:0.

85. Luis Suárez átti skalla af stuttu færi eftir aukaspyrnu frá Gerrard en boltinn fór í fangið á Friedel.

84. Gareth Bale slapp einn í gegnum vörn Liverpool en Walesverjinn fór illa að ráði sínu. Hann ætlaði að setja boltann á milli Pepe Reina en Spánverjinn sá við honum og varði skotið.

73. Andy Carroll skaut hátt yfir markið úr góðu færi eftir að hafa fengið sendingu frá Martin Kelly. Leikurinn fer að mestu fram á vallarhelmingi Tottenham.

71. Louis Saha er að koma inná í sínum fyrsta leik fyrir Tottenham. Það er púað á Frakkann enda fyrrum leikmaður Everton.

70. Suárez er ekki lengi að láta finna fyrir sér. Úrúgvæinn var óheppinn. Hann sparkaði óvart í kviðinn á Scott Parker og fékk að launum gult spjald.

65. Það fer kliður um Anfield því Úrúgvæinn Luis Suárez var að koma inná. Þetta er hann fyrsti leikur síðan á öðru degi jóla. Dirk Kuyt víkur fyrir Suárez. Liverpool-liðið er að herða róðurinn.

58. Bakvörðurinn Martin Kelly átti þrumuskot að marki Tottenham sem gamli maðurinn Brad Friedel varði vel í horn.

56. Þung sókn hjá Tottenham sem endaði með skoti frá Bale með hægri fæti. Það var algjörlega misheppnað.

45. Hálfleikur á Anfield. Staðan er, 0:0. Leikurinn hefur ekki alveg staðið undir væntingum. Liðin hafa bæði náð upp ágætum samleiksköflum en færin hafa verið á skornum skammti. Vonandi verður meira fjör í seinni hálfleik.

45. Glen Johnson átti ágæt skot sem Brad Friedel þurfti að hafa fyrir að verja með fætinum.

32. Jay Spearing átti gott skot utan teigsins en boltinn fór rétt framhjá marki Tottenham. Besta tilraun Liverpool til þessa og í öllum leiknum.

25. Staðan er enn 0:0 á Anfield. Engin hættuleg marktækifæri hafa litið dagsins ljós. Liverpool hefur verið meira með boltann en hefur ekki náð að opna vörn gestanna.

12. Gera þurfti smá hlé á leiknum þar sem köttur hljóp inn á völlinn. Kötturinn er grár að lit. Vallarstarfsmönnum tókst að handsama dýrið og leikurinn getur því haldið áfram.

6. Liverpool fékk aukaspyrnu rétt við vítateigslínuna fyrir miðju marki. Steven Gerrard tók spyrnuna en boltinn fór í varnarvegginn og Tottenham náði að bægja hættunni frá.

Liverpool: Reina, Johnson, Kelly, Agger, Skrtel, Spearing, Kuyt, Gerrard, Adam, Carroll, Bellamy. Varamenn: Doni, Suarez, Henderson, Coates, Downing, Carragher, Aurelio.

Tottenham: Friedel, Walker, Dawson, King, Assou-Ekotto, Livermore, Parker; Kranjcar, Modric, Bale, Adebayor. Varamenn: Cudicini, Saha, Rose, Nelsen, Luongo, Lancaster, Khumalo.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is