Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 6.2.2012
| 15:27
| Uppfært
17:35
Best frá keppni í sex vikur
Írski framherjinn Leon Best leikur ekki með Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu næstu sex vikurnar eða svo en hann meiddist á hné í leik liðsins við Aston Villa í gær.
Alan Pardew knattspyrnustjóri Newcastle staðfesti þetta við Sky Sports en Best þurfti að fara af velli strax á 14. mínútu eftir harðan árekstur við Stephen Warnock, varnarmann Villa. Pardew sagði að liðbönd hefðu tognað í hnénu og vanalega tæki það um sex vikur að jafna sig.
Hann staðfesti jafnframt að varnarmaðurinn Ryan Taylor væri óbrotinn en hann þurfti líka að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik í gær, meiddur á ökkla.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






