Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 6.2.2012
| 23:18
| Uppfært
7.2.2012
0:59
Bobby Charlton gekkst undir aðgerð
Sir Bobby Charlton, goðsögn hjá Manchester United, gekkst undir minniháttar aðgerð í dag. Charlton, sem er 74 ára gamall, átti að taka á móti sérstakri viðurkenningu, Laureus-verðlaununum, í London í kvöld en gat ekki verið viðstaddur.
Það var í gær sem Charlton fór að líða illa og að sögn enskra fjölmiðla í kvöld gekkst hann undir minniháttar aðgerð í dag þar sem fjarlægðir voru gallsteinar.
„Sir Bobby líður vel en það þótti best að hann færi aftur til Manchester. Hann er mjög gramur yfir því að hafa ekki getað tekið á móti viðurkenningunni en ég tek verðlaunagripinn fyrir hann og kem með hann á Old Trafford,“ sagði sir Alex Ferguson, stjóri United.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






