Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 6.2.2012
| 22:27
Dalglish: Fengum ekki það sem við áttum skilið
Kenny Dalglish knattspyrnustjóri Liverpool var vitaskuld ósáttur að ná ekki þremur stigum í hús í leiknum gegn Tottenham í kvöld en liðin gerðu markalaust jafntefli. Liverpool hefur ekki tapað á heimavelli í deildinni á tímabilinu en hefur aðeins unnið 4 leiki en jafnteflin eru 8 talsins.
,,Við fengum ekki það sem við verðskulduðum en það mikilvægasta fyrir okkur var að við vorum ánægðir með hvernig liðið spilaði. Við settum Tottenham undir pressu og spiluðum með mikilli einbeitni,“ sagði Dalglish eftir leikinn.
Um færið sem Gareth Bale fékk undir lokin sagði Dalglish; ,,Pepe Reina hafði ekki mikið að gera en þetta var góð markvarsla hjá honum.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






