Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 6.2.2012
| 16:27
| Uppfært
16:59
Ferguson sleppur við ákæru
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United verður ekki ákærður fyrir ummæli sem hann viðhafði um annan aðstoðardómarann í viðureign Chelsea og Manchester United á Stamford Bridge í gær.
Ferguson gagnrýndi Darren Cann harkalega fyrir að lyfta ekki flaggi sínu og dæma brot á Gary Cahill þegar hann felldi Danny Welbeck snemma leiksins. Ferguson segir að senda hefði átt Cahill af velli fyrir brotið og United fá vítaspyrnu.
„Chelsea hefði átt að missa mann af velli. Þessi línuvörður dæmdi vítaspyrnu á okkur í leik á móti Liverpool og á þessu ári á móti Arsenal og hann sér þetta ekki. Hann er hins vegar ánægður að flagga á Old Trafford og dæma víti,“ sagði Ferguson eftir leikinn í gær.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






