Frimpong heim með slitið krossband

Emmanuel Frimpong í leik með Wolves. stækka

Emmanuel Frimpong í leik með Wolves. Reuters

Emmanuel Frimpong leikur ekki meira með Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en hann er farinn aftur heim til Arsenal eftir að hafa slitið krossband í hné í leik liðsins gegn QPR á laugardaginn.

Frimpong, sem er tvítugur miðjumaður, kom til Wolves sem lánsmaður frá Arsenal um áramótin en náði aðeins að spila fimm leiki. Hann verður væntanlega frá keppni framundir næstu jól vegna meiðslanna, en þetta er í annað sinn á þremur árum sem Frimpong slítur krossband í hné.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is