Hargreaves á förum frá City

Owen Hargreaves í leik með Manchester City í vetur. stækka

Owen Hargreaves í leik með Manchester City í vetur. Reuters

Owen Hargreaves verður að óbreyttu ekki boðinn nýr samningur hjá Manchester City en knattspyrnustjórinn Roberto Mancini segir að félagið hafi tekið áhættu með því að semja við hann, og það hafi ekki gengið upp.

Hargreaves er með langa meiðslasögu að baki og var leystur undan samningi hjá Manchester United síðasta vor. Það kom mjög á óvart þegar City samdi við hann í haust en þessi fyrrum lykilmaður á miðju enska landsliðsins hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum í vetur.

„Við tókum áhættu með Owen því hann var frábær leikmaður. Við vonuðumst til þess að geta komið honum í form á 2-3 mánuðum og nýtt hann eftir það, en það hefur ekki gengið sem skyldi. Þegar leikmaður sem hefur verið frá keppni í tvö ár byrjar að æfa daglega koma upp alls kyns smávægileg meiðsli, í hnjám eða vöðvum. Owen hefur af þeim sökum ekki verið leikfær þegar við höfum þurft á honum að halda. Hann gæti spilað seinna á tímabilinu en er ekki leikfær núna. Vonandi á hann eftir að komast í að spila á fullu alla leiki, hann verðskuldar það svo sannarlega því þetta er besti drengur,“ sagði Mancini við Manchester Evening News.

Hargreaves er 31 árs gamall og á að baki 42 landsleiki fyrir Englands hönd. Hann lék með Bayern München frá 2000 til 2007 og þá keypti Manchester United hann, en Hargreaves náði aðeins að spila 27 leiki í úrvalsdeildinni á fjórum árum hjá félaginu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is