Parker: Alltaf erfitt á Anfield

Scott Parker á Anfield í kvöld. stækka

Scott Parker á Anfield í kvöld. Reuters

,,Þegar þú kemur á Anfield er það alltaf erfitt og það varð engin breyting á því í kvöld,“ sagði Scott Parker miðjumaðurinn frábæri í liði Tottenham eftir jafntefli á móti Liverpool á Anfield í kvöld.

Parker átti frábæran leik og að öðrum ólöstuðum var hann besti maður vallarins.

,,Við vorum svolítið hægir í okkar leik en við náðum í stig og héldum markinu hreinu. Það hefur alltaf sín áhrif ef knattspyrnustjórinn er ekki til staðar. Við fáum orku með hann á bekknum og hann hvetur okkur áfram. Við höfum saknað hans síðustu vikurnar,“ sagði Parker.

Redknapp hefur verið í réttarsalnum síðustu vikurnar en ástæðan fyrir því hann gat ekki stjórnað sínu liði á Anfield í kvöld var sú að flugvél sem átti að flytja hann frá London bilaði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is