Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 6.2.2012
| 15:06
Stoke áfrýjar brottrekstri Huths (myndskeið)
Stoke City hefur áfrýjað til enska knattspyrnusambandsins vegna rauða spjaldsins sem miðvörðurinn Robert Huth fékk í leik liðsins við Sunderland í úrvalsdeildinni á laugardaginn.
Martin Atkinson dómari rak Huth af velli eftir að Þjóðverjinn renndi sér í tæklingu gegn David Mayler miðjumanni Sunderland, undir lok fyrri hálfleiks.
Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, fór hörðum orðum um þátt Maylers í atvikinu og sagði m.a. við BBC að tími væri kominn til að refsa mönnum harðlega fyrir leikaraskap.
Sitt sýnist hverjum um atvikið sem sjá má hér:
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






