Suárez byrjar á bekknum

Luis Suárez fagnar marki gegn QPR. stækka

Luis Suárez fagnar marki gegn QPR. Reuters

Úrúgvæinn Luis Suárez hefur leik á varamannabekknum hjá Liverpool í kvöld þegar liðið tekur á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Suárez hefur lokið við að afplána átta leikja bann og væntanlega mun hann koma eitthvað við sögu í leiknum. Steven Gerrard er hins vegar í byrjunarliði Liverpool og í fremstu víglínu leika þeir Andy Carroll og Craig Bellamy.

Töluverð þoka lá yfir Anfield fyrr í kvöld og á tímabili var jafnvel útlið fyrir að fresta þyrfti leiknum en þokunni hefur nú létt og fer leikurinn fram. Harry Redknapp stýrir ekki sínum mönnum í kvöld þar sem hann flugvél sem átti að flytja hann frá London fór ekki á loft vegna þokunnar í Liverpool.

Liverpool: Reina, Johnson, Kelly, Agger, Skrtel, Spearing, Kuyt, Gerrard, Adam, Carroll, Bellamy. Varamenn: Doni, Suarez, Henderson, Coates, Downing, Carragher, Aurelio.

Tottenham: Friedel, Walker, Dawson, King, Assou-Ekotto, Livermore, Parker; Kranjcar, Modric, Bale, Adebayor. Varamenn: Cudicini, Saha, Rose, Nelsen, Luongo, Lancaster, Khumalo.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is