Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 6.2.2012
| 17:18
Van Persie með gott forskot
Hollendingurinn Robin Van Persie er markahæsti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Van Persie, sem skoraði þrennu fyrir Arsenal gegn Blackburn á laugardaginn, hefur skorað 22 mörk í deildinni, sex mörkum meira en næsti maður.
Fyrirliði Arsenal-liðsins hefur skorað samtals 28 mörk í öllum keppnum á tímabilinu og þar af hafa aðeins tvö komið af vítapunktinum.
Markahæstu leikmenn í úrvalsdeildinni, í sviga mörk í öllum keppnum:
22 - Robin Van Persie, Arsenal (28)
16 - Demba Ba, Newcastle (16)
15 - Wayne Rooney, Man Utd (20)
14 - Sergio Agüero, Man City (18)
12 - Edin Dzeko, Man City (16)
12 - Yakubu, Blackburn (13)
10 - Clint Dempsey, Fulham (16)
10 - Gareth Bale, Tottenham (11)
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






