Blackpool og Millwall áfram í bikarnum

Ian Holloway knattspyrnustjóri Blackpool. stækka

Ian Holloway knattspyrnustjóri Blackpool. Reuters

Blackpool og Millwall tryggðu sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Blackpool vann öruggan útisigur á Sheffield Wednesday, 3:0, og Millwall gerði góða ferð til Southampton og vann heimamenn, 3:2.

Það stefndi allt í sigur Southampton en liðið var 2:1 yfir þegar 13 mínútur voru til leiksloka en Millwall var á öðru máli og tókst að knýja fram sigur. Sigurmarkið skoraði Liam Feeney á lokamínútum leiksins. Millwall mætir Grétari Rafni Steinssyni og félögum hans í Bolton í 16-liða úrslitunum.

Blackpool mætir Everton í 16-liða úrslitunum. Matt Phillips, Lomana LuaLua og skoruðu mörk liðsins gegn Sheffield Wednesday.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is