Chelsea: Eðlileg samtöl
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur borið til baka fregnir um að Roman Abramovich eigandi félagsins hafi átt alvarlegar viðræður við knattspyrnustjórann André Villas-Boas um framtíð hans í starfi hjá Chelsea.
Abramovich var á æfingu hjá liðinu á laugardaginn og á leiknum gegn Manchester United á sunnudaginn, þar sem Chelsea missti niður þriggja marka forskot í seinni hálfleiknum. Í framhaldinu hafa verið fregnir af samtölum eigandans og stjórans í enskum fjölmiðlum en talsmaður Chelsea sagði við The Telegraph að þau hafi verið á eðlilegum nótum.
„Roman reynir að mæta á æfingasvæðið og fylgjast með æfingum þegar hann mögulega getur. Hann kom í heimsókn á laugardag og átti gott spjall við André að æfingunni lokinni, allt á eðlilegum nótum.“
Villas-Boas sagði sjálfur að fundurinn með eigandanum hefði verið mjög jákvæður. „Við ræddum að sjálfsögðu undirbúninginn fyrir leikinn. Roman er alltaf mjög áhugasamur um gang mála hjá okkur og það var gott fyrir liðið að finna fyrir nærveru hans. Að sjálfsögðu komum við aðeins inná áætlanir fyrir næsta ár en fyrst og fremst ræddum við þennan leik. Roman er afar vel inni í öllu heildarskipulagi Chelsea,“ sagði Villas-Boas.






