Hermann missir af næstu leikjum

Hermann Hreiðarsson. stækka

Hermann Hreiðarsson. www.ccfc.co.uk

Hermann Hreiðarsson leikur ekki með Coventry í næstu leikjum liðsins í ensku B-deildinni í knattspyrnu en hann þarf líklega að fara í aðgerð á öxl. Þetta kom fram í viðtali við hann á Sportrásinni á Rás 2 í gærkvöld.

Hermann kom til liðs við Coventry í janúar, frá Portsmouth, og samdi út tímabilið. Hann hefur aðeins náð að spila tvo deildaleiki en Hermann missti af leik Coventry og Ipswich á laugardaginn vegna meiðslanna sem hann varð fyrir á æfingu. Fram kom að Hermann væri búinn að fara í myndatöku og myndi hitta sérfræðing síðar í vikunni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is