Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 7.2.2012
| 17:17
Huth fer í þriggja leikja bann
Þýski varnarmaðurinn Robert Huth sem leikur með Stoke fer í þriggja leikja bann eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið í viðureign Stoke og Sunderland um síðustu helgi.
Stoke áfrýjaði úrskurði dómarans og tók aganefnd enska knattspyrnusambandsins málið fyrir nú síðdegis og vísaði hún áfrýjun Stoke frá.
Martin Atkinson dómari rak Huth af velli eftir að Þjóðverjinn renndi sér í tæklingu gegn David Mayler, miðjumanni Sunderland, undir lok fyrri hálfleiks.
Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, fór hörðum orðum um þátt Maylers í atvikinu og sagði m.a. við BBC að tími væri kominn til að refsa mönnum harðlega fyrir leikaraskap.
Huth missir af leikjum sinna manna gegn Fulham og Swansea í deildinni og gegn Crawley í bikarnum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






