Kári á eitt af mörkum ársins (myndskeið)

Kári Árnason. stækka

Kári Árnason. www.afc.co.uk

Kári Árnason, sem nú leikur með Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á eitt af tíu mörkum sem þykja þau bestu í ensku deildakeppninni á árinu 2011.

Kári skoraði markið fyrir Plymouth gegn MK Dons í ensku C-deildinni síðasta vetur, með miklum þrumufleyg af 35 metra færi.

Það eru Soccer AM og deildakeppnin (Football League) sem standa að kjörinu á marki ársins en hægt er að kjósa um eitt af þessum tíu mörkum sem skoruð voru í þremur næstefstu deildum Englands (B, C og D-deildum) eða af liðum úr þessum deildum í enska deildabikarnum.

Á þessari slóð má skoða mörkin tíu og kjósa það besta:

Mark ársins 2011.

Mark Kára má líka sjá hér að neðan:

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is