Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 7.2.2012
| 10:01
Kötturinn sló í gegn á Anfield (myndskeið)
Ein bestu tilþrifin í markalausum leik Liverpool og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld átti köttur nokkur sem rölti inná Anfield eftir rúmlega tíu mínútna leik.
Kisi skokkaði um í vítateig Tottenham, í kringum Brad Friedel markvörð, beið þar átekta um stund og rölti síðan útaf vellinum þar sem öryggisvörður tók hann í sína vörslu. Gert var hlé á leiknum á meðan.
Athygli vakti hve allir voru rólegir yfir atvikinu og leyfðu kisa að ráða ferðinni, enda er hætt við að þeir sem hefðu farið að elta köttinn frammi fyrir sjónvarpsvélunum hefðu orðið aðhlátursefni út um allan heim!
Frammistöðu kattarins á Anfield má sjá hér fyrir neðan:
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






