Terry ætlar ekki að hætta
John Terry, fyrirliði Chelsea, sem á föstudag var sviptur fyrirliðastöðunni í enska landsliðinu í knattspyrnu, ætlar ekki að hætta að gefa kost á sér í landsliðið, samkvæmt frétt BBC.
Eftir ákvörðun enska knattspyrnusambandsins áttu margir von á því að Terry myndi draga sig í hlé frá landsliðinu. BBC segir að heimildarmenn sínir sem standi Terry nærri segi að það sé honum fjarri að taka slíka ákvörðun.
Terry hefur stöðugt haldið fram sakleysi sínu hvað varðar kynþáttaníð í garð Antons Ferdinands, leikmanns QPR, í leik liðanna fyrr í vetur. Ferdinand kærði Terry en málinu var í síðustu viku frestað hjá breskum dómstólum framyfir Evrópukeppnina í Póllandi og Úkraínu í sumar.
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, gagnrýndi um helgina ákvörðun knattspyrnusambandsins. Það hefur farið fyrir brjóstið á mörgum í Englandi og reiknað er með að sambandið muni áminna þjálfara sinn fyrir það. Sumir hafa krafist þess að honum verði sagt upp starfinu af þessum sökum.






