Capello: Mér var gróflega misboðið

Fabio Capello. stækka

Fabio Capello. Reuters

Fabio Capello, sem sagði af sér sem landsliðsþjálfari Englendinga í kvöld, segir að enska knattspyrnusambandið hafi gróflega misboðið sér með því að taka ákvörðun um að svipta John Terry stöðu landsliðsfyrirliða.

„Þeir móðguðu mig og lítilsvirtu starf mitt. Það sem gerði virkilega útslagið af minni hálfu var þeirra útfærsla á hinni frægu engilsaxnesku réttvísi þar sem þeir fullyrða ávallt manna fyrstir að hver maður sé saklaus uns sekt hans er sönnuð. Í máli Terrys misbuðu þeir mér gróflega og grófu undan mér sem stjórnanda enska landsliðsins, og bjuggu til vandamál fyrir liðið," sagði Capello við ítalska netmiðilinn Italpress í kvöld.

„Ég hef aldrei þolað ákveðin afskipti þar sem farið er yfir strikið, svo það var auðvelt  fyrir mig að taka þessa ákvörðun og hætta," sagði Capello ennfremur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is