Dzeko: Er bjartsýnn á að við vinnum titilinn

Edin Dzeko. stækka

Edin Dzeko. Reuters

Bosníumaðurinn Edin Dzeko segist líða eins og heima hjá sér þegar er hann er spurður hvernig honum líkar lífið á Englandi. Dzeko segist bjartsýnn á að lið hans, Manchester City, takist að vinna enska meistaratitilinn í ár.

Dzeko hefur skorað 16 mörk í öllum keppnum fyrir City og hefur átt sinn þátt í að liðið trónir á toppi úrvalsdeildarinnar.

,,Mér líður eins og heima hjá mér. Ég er hjá góðu félaginu og það eru engin vandamál hjá því. Fólkið sem kemur að félaginu er virkilega gott og ég hef eignast marga vini hjá því. Við erum í góðri stöðu í deildinni og jafnvel þótt margir leikir séu eftir er ég bjartsýnn. Ef við höfum heppnina með okkur og erum tilbúnir að berjast þá gætu þessir hlutir gert útslagið í titilbaráttunni,“ segir Dzeko.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is