Hamburg hefur augastað á Gylfa
Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Swansea er greinilega farinn að vekja áhuga hjá mörgum liðum eftir góða frammistöðu með nýliðunum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Þýska knattspyrnutímaritið Kicker greinir frá því í dag að þýska liðið Hamburg hafi nú Gylfa undir smásjánni og ætli að freista þess að fá hann í sínar raðir þegar lánssamningur hans við Swansea rennur út í vor.
Gylfi er samningsbundinn Hoffenheim til ársins 2014 og kemur fram í Kicker að Hamburg þyrfti að reiða fram um einn milljarð króna til að fá Gylfa í sínar raðir en þá upphæð greiddi Hoffenheim þegar það keypti hann frá enska liðinu Reading í ágúst 2010.
Fleiri lið í Evrópu eru sögð hafa sent inn fyrirspurnir til Hoffenheim þar sem þau hafa spurst fyrir um íslenska landsliðsmanninn, sem hefur svo sannarlega gert það gott með Swansea-liðinu frá því hann gekk í raðir þess um áramótin.






