Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 8.2.2012
| 15:40
| Uppfært
16:43
Lampard og Mikel komnir af stað
Frank Lampard og Mikel John Obi, miðjumenn enska knattspyrnuliðsins Chelsea, eru komnir af stað á æfingum með liðinu á ný eftir fjarveru vegna meiðsla.
Lampard hefur misst af síðustu þremur leikjum Lundúnaliðsins vegna tognunar í kálfa en Mikel hefur verið frá keppni í sjö vikur vegna tognunar aftan í læri.
Talið er líklegt að Lampard geti spilað með Chelsea gegn Everton á laugardaginn en ólíklegra er að Mikel verði kominn í nægilega gott form til þess.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






