Leikmenn United og Liverpool munu heilsast

Luis Suárez og Patrice Evra munu mætast á Old Trafford á laugardaginn. stækka

Luis Suárez og Patrice Evra munu mætast á Old Trafford á laugardaginn. Reuters

Stjórnendur ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu hafa ekki uppi áform um láta leikmenn Manchester United og Liverpool sleppa því að takast í hendur þegar liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford á laugardaginn.

Patrice Evra og Luis Suárez mætast þar á ný en sem kunnugt dró fyrri leikur liðanna í deildinni heldur betur dilk á eftir sér. Evra kærði Suárez fyrir kynþáttaníð og Úrúgvæinn var í kjölfarið úrskurðaður í átta leikja bann, sem hann hefur nú lokið við að afplána.

Í síðasta mánuði ákváðu forkólfar ensku úrvalsdeildarinnar að sleppa því að láta leikmenn QPR og Chelsea heilsast fyrir leikinn en með því vildu þeir slaka á spennu en kærumál Antons Ferdinands á hendur John Terry fyrir meint kynþáttaníð er til rannsóknar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is