Redknapp næsti landsliðsþjálfari?
Flestir breskir fjölmiðlar og veðbankar telja að Harry Redknapp verði næsti landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, í kjölfar þess að hann var sýknaður af ákærum í skattsvikamálinu í dag.
Redknapp hefur þótt líklegasti eftirmaður Fabios Capellos sem hættir með enska liðið eftir úrslitakeppni EM í sumar. Skattamálið flæktist þó fyrir honum og ljóst er að ef hann hefði verið fundinn sekur hefði umræðan um starf landsliðsþjálfara verið úr sögunni hvað hann varðar.
Nú er fyrst og fremst beðið eftir viðbrögðum frá Redknapp og Tottenham og spurt hvort hann sé tilbúinn til að yfirgefa félagið eftir frábært gengi þess undir hans stjórn. Redknapp er almennt vinsæll í Englandi og óskaþjálfari margra þar í landi.
Redknapp er 64 ára gamall og hefur stýrt enskum knattspyrnuliðum frá 1983, Bournemouth, West Ham, Southampton, Portsmouth og svo Tottenham frá 2008.






