Redknapp: Þetta var martröð
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, segir að það hafi verið skelfileg lífsreynsla að vera dreginn fyrir rétt, ákærður fyrir skattsvik. Hann var úrskurðaður saklaus fyrir rétti í London í dag.
„Satt best að segja var þetta hrein martröð. Þetta mál er búið að taka fimm ár og það hefði aldrei átt að fara fyrir rétt, eins ótrúlegt og þetta var. Ég mun aldrei gleyma þeim stuðningi sem ég hef fengið frá stuðningsmönnum Tottenham á þessum tíma,“ sagði Redknapp við fréttamenn á tröppum dómshússins í dag og þakkaði fjölskyldu sinni, lögfræðingum, forráðamönnum Tottenham og stuðningsmönnum.
BBC segir að Redknapp hafi verið gráti næst þegar hann ræddi við fréttamenn.
„Leikurinn gegn Wigan (31. janúar) var sá tilfinningaríkasti sem ég hef upplifað, því stuðningsmenn liðsins sungu nafn mitt leikinn á enda. Ég mun aldrei gleyma því. Nú hlakka ég til þess að koma heim til mín og halda áfram mínu daglega lífi,“ sagði Redknapp en þrettán daga réttarhöldum lauk í dag með þessari niðurstöðu.






