Reynir að fá Berbatov í landsliðið
Lubo Penev, landsliðsþjálfari Búlgaríu í knattspyrnu, kveðst vera vongóður um að fá helstu stjörnu landsins, Dimitar Berbatov, leikmann Manchester United, til að leika með landsliðinu á nýjan leik.
Berbatov, sem varð 31 árs í lok janúar, hætti að spila með landsliði Búlgaríu í maí 2010 en þá hafði hann verið fyrirliði þess í fjögur ár og skorað 48 mörk í 77 landsleikjum. Fyrr í vikunni tók Berbatov jákvætt í að gefa kost á sér á ný þegar hann var spurður um það á fréttamannafundi í Manchester.
„Einhver verður að hafa samband. Það er kveikt á símanum hjá mér og ég get svarað þessu betur ef beiðni um þetta berst. Ég hef ekki hitt Lubo Penev og ekki talað við hann," sagði Berbatov.
Penev brást vel við þessu: „Þetta er mjög jákvætt. Ég var búinn að stefna að því að heyra í Dimitar í vikunni. Að sjálfsögðu verð ég afar ánægður ef Berbatov snýr aftur í liðið," sagði Penev við búlgarska netmiðilinn dariknews.bg.






