Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 8.2.2012
| 22:50
| Uppfært
23:17
Rooney vill fá Redknapp
Wayne Rooney, framherji Manchester United, kveðst afar vonsvikinn yfir því að missa Fabio Capello úr starfi landsliðsþjálfara Englands en vill fá Harry Redknapp, knattspyrnustjóra Tottenham, í staðinn.
„Ég er afar vonsvikinn yfir því að Capello sé hættur. Fínn náungi og frábær þjálfari. Við verðum að fá Englending í staðinn. Ég mæli með Redknapp," sagði Rooney á Twitter í kvöld.
Redknapp virðist vera á flestra vörum í kvöld en Hollendingurinn Guus Hiddink hefur einnig verið nefndur til sögunnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






