Stoke-menn æfir yfir banni Huths

Robert Huth. stækka

Robert Huth. Reuters

Peter Coates, stjórnarformaður Stoke City, hefur krafist þess að vinnuaðferðir enska knattspyrnusambandsins verði endurskoðaðar eftir að áfrýjun félagsins vegna rauðs spjalds Roberts Huths var hafnað.

Huth er kominn í þriggja leikja bann þar sem hann var rekinn af velli í leik liðsins gegn Sunderland á laugardaginn. Hann spilar ekki gegn Fulham og Swansea í úrvalsdeildinni og Crawley í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar en getur hinsvegar spilað gegn Valencia í 32ja liða úrslitum Evrópudeildar UEFA í millitíðinni.

„Miðað við það sem gerðist þarf að breyta kerfinu. Það virkar ekki á fullnægjandi hátt. Dómarar gera mistök og það er ekki hægt að áfellast þá fyrir það, en við þurfum kerfi sem tekur á því. Við erum vonsviknir yfir þessari ákvörðun, Við höfum sterklega á tilfinningunni að þeir hafi ekki skoðað málið því þeir voru svo fljótir að hafna þessu. Það var ekki minnsta tilefni fyrir þessum brottrekstri hjá Huth sem gerði allt rétt í tæklingunni," sagði Coates  við staðarblaðið The Sentinel.

Þetta er aðeins annar brottrekstur Þjóðverjans stóra og sterka í 239 leikjum í enska fótboltanum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is