Barcelona og Real Madrid hyggjast bjóða í Van Persie

Robin van Persie og Alex Oxlade-Chamberlain fagna marki með Arsenal um síðustu helgi. stækka

Robin van Persie og Alex Oxlade-Chamberlain fagna marki með Arsenal um síðustu helgi. Reuters

Spænskir fjölmiðar greina frá því í dag að Barcelona og Real Madrid hyggjast bæði leggja inn tilboð í hollenska sóknarmanninn Robin Van Persie.

Samningur Van Persie við Arsenal rennur út sumarið 2013 en hann hefur farið á kostum með Lundúnaliðinu á leiktíðinni og er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni með 22 mörk. Forráðamenn Arsenal hafa legið í Van Persie og reynt að fá hann til að framlengja samninginn en þeim hefur ekki orðið ágengt til þessa.

Van Persie er 28 ára gamall sem kom til Arsenal frá Feyenoord árið 2004

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is