Dalglish: Suárez mun heilsa Evra
Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Luis Suárez muni heilsa Patrice Evra fyrir leikinn gegn Manchester United á Old Trafford á laugardaginn en liðin mætast þar í ensku úrvalsdeildinni.
Suárez hefur afplánað átta leikja bann sem hann fékk fyrir meint kynþáttaníð í garð Evra í viðureign liðanna í deildinni í október. Hann var því ekki með þegar liðin mættust í bikarkeppninni um fyrri helgi en þá vann Liverpool 2:1 á Anfield.
Miklar vangaveltur hafa verið um hvernig staðið verði að hefðbundnu handbandi liðanna fyrir leik og hvort Suárez og Evra muni takast í hendur. Á dögunum var hætt við handaband fyrir leik Chelsea og QPR svo ekki yrði óþarfa spenna í kringum endurfund Johns Terrys og Antons Ferdinands.
„Fólk er mikið að velta fyrir sér athöfninni fyrir leikinn en hvað Luis varðar þá höfum við rætt við hann og ég veit að hann mun taka í hönd Patrice Evra og annarra leikmanna Manchester United fyrir leikinn," sagði Dalglish á vef Liverpool.
„Allir sem koma að leiknum, meðtaldir fjölmiðlar, stuðningsmenn og bæði lið, bera þá ábyrgð að hans verði minnst sem frábærs fótboltaleiks milli tveggja mjög góðra liða, frekar en einhvers annars. Mér fannst að allir sem tóku þátt í bikarleiknum á Anfield hefðu lagt sitt að mörkum til að sjá til þess að leikurinn færi fram á réttum forsendum, svo við verðum að sjá til þess að þannig verði þetta líka um helgina. Ég veit að margir vilja tala um Luis Suárez en hann samþykkti sitt bann, tók það út og mætti aftur til leiks gegn Spurs á mánudaginn. Nú er kominn tími til að leggja það til hliðar og horfa fram á veginn," sagði Dalglish.






