Eggert gæti fengið tækifæri á ný

Eggert Gunnþór í baráttu við tvo leikmenn Birmingham. stækka

Eggert Gunnþór í baráttu við tvo leikmenn Birmingham. Reuters

Eggert Gunnþór Jónsson gæti fengið tækifæri á ný með Wolves á sunnudaginn þegar liðið mætir grönnum sínum í WBA í ensku úrvalsdeildinni. Meiðsli og leikbönn hjá miðjumönnum Úlfanna gætu orðið til þess að Eggert verði í byrjunarliðinu en hann var ekki í leikmannahópi liðsins í sigurleik þess á móti QPR um síðustu helgi.

Emmanuel Frimpong, lánsmaður frá Arsenal, er úr leik vegna meiðsla, Karl Henry tekur út leikbann og þeir Jamie O'Hara og Dave Edwards eru tæpir vegna meiðsla. Allir þessir leikmenn spila sem miðjumenn eins og Eggert sem getur þó leikið í flestum stöðum á vellinum líkt og hann gerði hjá skoska úrvalsdeildarliðinu Hearts.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is