Heiðar ekki með gegn Blackburn

Heiðar Helguson. stækka

Heiðar Helguson. Reuters

Heiðar Helguson verður ekki með QPR á laugardaginn þegar liðið sækir Blackburn Rovers heim í miklum fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Heiðar hefur ekki jafnað sig af meiðslum sem hann varð fyrir í leiknum við Chelsea í lok janúar. Þá fór hann af velli og var síðan ekki með gegn Aston Villa og Wolves í úrvalsdeildinni.

Mark Hughes knattspyrnustjóri QPR skýrði frá þessu á fréttamannafundi sem nú stendur yfir. Auk Heiðars eru DJ Campbell og Luke Young meiddir og Djibril Cissé er í leikbanni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is