Henry yfirgefur Arsenal í næstu viku

Thierry Henry. stækka

Thierry Henry. Reuters

Thierry Henry yfirgefur Arsenal í næstu viku en ljóst er nú að lánssamningur hans við Lundúnaliðið verður ekki framlengdur. Arsenal-menn voru að vonast til þess að Frakkinn yrði lengur hjá félaginu en Hans Backe, þjálfari Henrys hjá New York Red Bulls, segir að Henry komi aftur til félagsins 17. febrúar.

„Þegar ég ræddi við hann þá var hann 100% öruggur á því að koma aftur til baka 17. febrúar,“ sagði Backe við fréttamenn í dag.

Arsenal-menn voru að vonast til þess að Henry yrði með liðinu í grannaslagnum gegn Tottenham sem fram fer 26. þessa mánaðar en þeim verður ekki að ósk sinni.

Henry hefur skorað tvö mörk frá því hann sneri aftur í sitt gamla lið. Hann skoraði sigurmarkið á móti Leeds í bikarnum og sjöunda markið í 7:1 sigri gegn Blackburn um síðustu helgi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is