Rodgers með nýjan samning við Swansea

Brendan Rodgers. stækka

Brendan Rodgers. Reuters

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri velska félagsins Swansea City hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til sumarsins 2015, eða til hálfs fjórða árs.

Undir stjórn Rodgers hefur Swansea komið skemmtilega á óvart í ensku úrvalsdeildinni í vetur en félagið vann sér sæti þar síðasta vor eftir að hafa komist í gegnum umspil B-deildarinnar. Gylfi Þór Sigurðsson kom til félagsins sem lánsmaður frá Hoffenheim um áramótin og lék undir stjórn Rodgers hjá Reading á sínum tíma.

Þetta er annað tímabil Rodgers með Swansea en hann er 39 ára gamall. Leikstíll Swansea hefur vakið mikla athygli en liðið hefur spilað mjög skemmtilegan fótbolta og er stundum líkt við Barcelona. Swansea er í 10. sæti úrvalsdeildarinnar, tíu stigum fyrir ofan fallsætin þegar 14 umferðir eru eftir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is