Sex ensk meðal tólf tekjuhæstu

Manchester United er sem fyrr tekjuhæsta félag Englands og í þriðja sæti heimslistans. stækka

Manchester United er sem fyrr tekjuhæsta félag Englands og í þriðja sæti heimslistans. Reuters

Real Madrid og Barcelona eru áfram tvö tekjuhæstu knattspyrnufélög heims og England á sex af þeim tólf efstu á tekjulista ársins 2011, samkvæmt árlegri skýrslu Deloitte þar sem tekjur félaganna eru teknar saman.

Real var með 479,5 milljón evrur í tekjur á árinu 2011, Barcelona var með 450,7 milljónir og Manchester United var í þriðja sætinu með 367 milljón evrur í tekjur.

Staða félaganna er óbreytt frá árinu 2010 og röð sex efstu félaganna er sú sama og þá, með Manchester United, Arsenal og Chelsea í næstu sætum. Hástökkvarar eru hinsvegar Schalke sem er komið í 10. sætið úr því 16. og AC Milan sem klifrar úr 10. sætinu í það 7. Þá hafa  Inter Mílanó og Liverpool sætaskipti í 8. og 9. sætinu og Tottenham fór uppfyrir Manchester City og í 11. sætið.

Tólf tekjuhæstu lið heims eru eftirtalin, upphæðir í evrum:

1. Real Madrid, Spáni, 479,5 milljónir
2. Barcelona, Spáni, 450,7 milljónir
3. Manchester United, Englandi, 367,0 milljónir
4. Bayern München, Þýskalandi, 321,4 milljón
5. Arsenal, Englandi, 251,1 milljón
6. Chelsea, Englandi, 249,8 milljónir
7. AC Milan, Ítalíu, 235,1 milljónir
8. Inter Mílanó, Ítalíu, 211,4 milljónir
9. Liverpool, Englandi, 203,3 milljónir
10. Schalke, Þýskalandi, 202,4 milljónir
11. Tottenham, Englandi, 181,0 milljón
12. Manchester City, Englandi, 169,6 milljónir

Dortmund, Valencia og Napoli eru komin í hóp 20 efstu, í staðinn fyrir Atlético Madrid, Stuttgart og Aston Villa.

Tekjuhæstu félögin utan Evrópu, Corinthians og Sao Paulo frá Brasilíu, eru nálægt 50. sætinu með 70-80 milljónir evra í árstekjur hvort.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is