Íþróttir
|
Enski boltinn
| mbl
| 9.2.2012
| 13:31
| Uppfært
14:21
Villa neitað um að fá Keane lengur
Bandaríska knattspyrnufélagið LA Galaxy hefur hafnað ósk enska félagsins Aston Villa um að framlengja lánssamninginn við írska landsliðsfyrirliðann Robbie Keane framyfir 25. febrúar.
Keane hefur spilað með Villa frá áramótum en samkvæmt samningnum á hann að fara aftur vestur um haf eftir leik gegn Wigan 25. febrúar. Keppnin í bandarísku MLS-deildinni hefst 10. mars og Galaxy vill hafa Keane í sínum röðum í lokaundirbúningnum.
Keane hefur skorað þrjú mörk á skömmum tíma fyrir Villa og reynst liðinu góður liðsauki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






