Bosque hefur áhyggjur af Torres

Torres fagnar með Juan Mata í leiknum gegn Manchester United um síðustu helgi. stækka

Torres fagnar með Juan Mata í leiknum gegn Manchester United um síðustu helgi. Reuters

Vicente del Bosque, landsliðsþjálfari heims- og Evrópumeistara Spánverja, hefur áhyggjur af framherjanum Fernando Torres og segir að hann verði að komast í betra form ætli hann að komast í landsliðshópinn sem leikur í úrslitakeppni EM í sumar.

Torres hefur aðeins náð að skora 5 mörk fyrir Chelsea frá því hann var seldur frá Liverpool fyrir 50 milljónir punda í janúar á síðasta ári. Hann hefur spilað 17 leiki í röð án þess að skora og það er ekki nema von að landsliðsþjálfarinn hafi áhyggjur af markaþurrð framherjans.

,,Fernando Torres veit hvað hann þarf að gera til þess að vera í hópnum,“ sagði Bosque við sjónvarpsstöðina Canal+ en Torres skoraði sigurmark Spánverja þegar þeir lögðu Þjóðverja í úrslitaleik á Evrópumótinu fyrir fjórum árum.





  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is