Carragher: Gerrard á verða fyrirliði

Steven Gerrard. stækka

Steven Gerrard. Reuters

Jamie Carragher varnarjaxlinn hjá Liverpool vill að samherji sinn, Steven Gerrard, verði skipaður fyrirliði enska landsliðsins til frambúðar en sem kunnugt er var John Terry sviptur fyrirliðastöðunni fyrir viku sem varð svo til þess að landsliðsþjálfarinn Fabio Capello sagði starfi sínu lausu.

Rio Ferdinand, Scott Parker og Joe Hart hafa allir verið nefndir til sögunnar sem kandídatar að taka við fyrirliðabandinu en Carragher telur Gerrard best til þess fallinn.

„Gerrard hefur verið fyrirliði Liverpool í um áratug. Hann var fyrirliði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, í Evrópuleikjum og í stórleikjum í úrvalsdeildinni. Hann var einnig fyrirliði enska landsliðsins í síðustu heimsmeistarakeppni og er einn af bestu leikmönnum Englands. Hann ætti því að mínu mati að verða fyrirliði landsliðsins,“ segir Carragher.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is