Cleverley tilbúinn gegn Liverpool
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, skýrði frá því á fréttamannafundi sínum í morgun að Tom Cleverley gæti komið við sögu í fyrsta skipti síðan í október þegar liðið tekur á móti erkifjendunum í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Cleverley hefur verið frá keppni síðan í lok október þegar hann meiddist á fæti í leik gegn Everton.
„Tom hefur æft vel undanfarið. Það voru vonbrigði að leikur hjá varaliðinu skyldi falla niður á mánudaginn en hann verður með á morgun. Annars er lítið að frétta hjá okkur hvað meiðsli varðar. Ég hugsa að Chris Smalling gæti spilað en staða annarra er óbreytt frá síðasta sunnudegi. Phil Jones fékk högg í leiknum við City og hefur ekki náð sér alveg af því en hann verður tilbúinn þegar við mætum Ajax,“ sagði Ferguson.






