Di Canio í barningi við dómara

Paolo di Canio, í miðju, fagnar Hermanni Hreiðarssyni, samherja sínum, í leik með Charlton fyrir ...

Paolo di Canio, í miðju, fagnar Hermanni Hreiðarssyni, samherja sínum, í leik með Charlton fyrir nokkrum árum. Reuters

Paolo di Canio, Ítalinn litríki sem setti sinn svip á ensku úrvalsdeildina á sínum tíma, fer ekki síður hamförum sem knattspyrnustjóri en hann er nú á leið í tveggja leikja bann eftir að hafa verið rekinn af varamannabekk D-deildarliðsins Swindon Town í þriðja sinn á þessu tímabili.

Di Canio kveðst ekki ætla að láta svona lagað stöðva sig. „Ég hef minn stíl og breyti honum ekki. Ég nota mikla líkamstjáningu og enskir dómarar verða að virða það við mig. Ég geri það sem mér sýnist á tæknisvæði vallarins. Þeir geta ekki komið í veg fyrir það. Ég kalla á mína menn og ég geri það sem ég vil við mína menn. Ef dómararnir vilja reka mig af bekknum í hverjum leik, þá þeir um það. Ég mun samt vinna þessa deild því liðið mitt er geysisterkt," sagði di Canio í viðtal við BBC.

Hann verður uppi í stúku í næstu tveimur leikjum og fyrir skömmu sat hann þar í tveggja leikja banni vegna þess að fagnaðarlæti hans fóru úr böndunum eftir mikilvægan sigur á Northampton.

Di Canio er með Swindon í fjórða sæti D-deildarinnar, en aðeins þremur stigum á eftir þremur efstu liðunum sem eru Southend, Crawley og Cheltenham. Swindon féll úr C-deildinni síðasta  vor en di Canio tók við stjórn liðsins um sumarið.

Hann lék á sínum tíma á sjötta hundrað deildaleiki á Ítalíu og í Englandi en þessi litríki sóknarmaður spilaði með Sheffield Wednesday, West Ham og Charlton í ensku úrvalsdeildinni frá 1997 til 2004 og skoraði 67 mörk í 190 leikjum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is